Tuesday, February 19, 2008

Excuse me...

Það er frekar fyndið að fylgjast með sætalingnum leika sér þessa dagana. Í gær var hún að leika sé með little people kalla og síðan þurfti einn að komast fram hjá öðrum og þá heyrist í minni "excuse me" og það var síðan endurtekið oft. Hún leikur sér alveg í bland á íslensku og ensku. "Oh no" heyrist líka mjög oft.

Löng helgi að baki en það var Presidents day og því frí hjá Jóa í gær. Hittum marga um helgina, fengum Zach og Kirsten í mat á föstudaginn (voru í bænum frá DC), Íris, Erla Magga og Haukur Ingi komu í mat á laugardaginn og síðan fórum við út að borða með Maríu, Brynna ofl. á sunnudaginn. Það er ekki alveg auðveldast í heimi að láta passa Sólveigu Júlíu svona á kvöldin, hún lætur okkur alveg finna fyrir því ef við erum á leiðinni út og vill bara láta halda á sér og grenjar úr sér líftóruna þegar við förum. Þetta var reyndar xtra slæmt á sunnudaginn því að við vorum með nýja barnapíu (vinnur á leikskólanum hennar, samt ekki í hennar deild). Ekki alveg gott fyrir foreldrahjartað en samt nauðsynlegt að komast út. Hún hætti víst samt um leið og við fórum, algjör snillingur í að koma inn samviskubiti hjá foreldrum sínum.

Kuldinn um daginn var bara pínu plat, mikill kuldi í 2 daga og svo er búið að vera gott veður. Segi ekki að það sé 15 stiga hiti upp á hvern dag (var samt í gær) en oftast logn og fallegt og því finnur maður ekki fyrir pínu kulda ef maður er vel búinn.

Kv. mamman

Monday, February 11, 2008

Brrrrrrrr

Nú er veturinn sko kominn, skítakuldi úti "-10 feels like -19" segir weather.com. Það hlaut að vera að það kæmi að þessu.

Helgin var rosalega fín, fórum á Sesame street sýningu í Madison square garden á laugardagsmorguninn. Sólveig Júlía sat stjörf allan tímann og vildi ekki fara þegar sýningin var búin. Hún átti síðan nokkra snilldartakta um helgina. Á laugardaginn röltum við mæðgur í leikfangabúðina sem er hér á horninu til að kaupa afmælisgjöf handa leikskólavinkonu hennar. Í búðinni er borð með lestarteinum þar sem krakkarnir mega leika sér á meðan fullorðna fólkið verslar. Ég kíki af og til á SJ og í eitt skiptið sé ég hana labba hálf-furðulega á móti mér og var mín þá búin að pissa í buxurnar (bleyjulaus). Ég kíki svona í kringum hana en sé engan poll og held því að þetta hafi þá bara farið allt í buxurnar. Þegar við komum heim þá segir hún "ég pissaði í buxurnar og konan þurrkaði" þ.a. á meðan mamman rölti í rólegheitum um búðina þá var mín bara búin að pissa á gólfið og búið að þrífa upp eftir hana...

Nýjasti frasi helgarinnar er hins vegar "what you doing pabbi" :)

Skelli nýjum myndum bráðlega inn.

kv. Ágústa

Tuesday, February 5, 2008


Þessi maður eltir mig! Hann býr hér í hverfinu og ég er hreinlega alltaf að sjá hann. Vorum að ýta börnunum í rólum hlið við hlið einu sinni, svitnum saman í gymminu og síðan sé ég hann bara úti á götu... Eftir að ég sá hann á róló þá gat ég ómögulega munað hvar ég hefði séð hann (þ.e. í hvaða þætti/mynd..) og það pirraði mig í nokkra mánuði og þegar ég síðan loks sá mynd af honum á netinu og fattaði hver hann var þá sé ég hann ALLS STAÐAR.

Monday, February 4, 2008

Hin gullna setning

Vorum rétt í því að koma heim úr leikskólanum og SJ sér þvottakörfu með hreinum þvotti á gólfinu. Segir þá við mömmu sína " Sólveig Júlía fer í leikskólann og mamma fer í þvottahúsið" !! Já það er spurning hvort maður þurfi að fara að hugsa sinn gang :)

Saturday, February 2, 2008

Nó more bleis..

eða svona næstum því! Sólveig Júlía er alveg hætt að nota bleyju þegar hún er heima og hafa ekki orðið nein slys í 4 daga. Við erum enn að bíða eftir að fá grænt ljós frá leikskólanum um að leyfa henni að koma bleyjulausri þangað, gerist annað hvort í næstu viku eða þeirri næstu. Þau taka nefnilega alltaf bara 2 börn fyrir í hverri viku í koppaþjálfun. Held reyndar að SJ þurfi enga koppaþjálfun þar sem hún segir mjög samviskulega til þegar henni er mál (reyndar svo mikið sport að hún fer oftar á koppinn heldur en hún þarf).

Duddumál eru líka loksins orðin betri og hún farin að biðja minna um hana. Fær ekki að vera með hana nema þegar hún er orðin þreytt og á meðan hún sefur. Segi nú ekki að duddan laumist ekki upp í hana þegar hún finnur hana en veit þá samt aaalveg upp á sig sökina og þá tístir alveg í henni, frekar sætt.

Ég fór í foreldraviðtal í leikskólanum hennar um daginn og kennarinn hennar hafði auðvitað ekkert nema gott um hana að segja. Er farin að taka meiri þátt í hinu og þessu þar sem hún er loks farin að tjá sig aðeins á ensku. Skilur allt og segir "yeþþþ" við öllu. Er orðin voða dugleg að segja litina á ensku (kunni það auðvitað fyrir langa löngu á íslensku), kann öll form á ensku (triangle, circle etc..) - kann það t.d. ekki á íslensku, osfrv. Er mjög dugleg að hjálpa sér sjálf, klæða sig í, ganga frá eftir matinn, þvo sér um hendur osfrv. Framburðurinn hennar á ensku er líka "exceptional" eins og Miss Heather orðaði það. Já já ég veit, mikið mont og aftur mont en það má nú stundum, ekki satt ;) ? Svo má ekki gleyma að hún er mjöööög "affectionate" , alltaf að knúsa hina krakkana. Þau eru 2 (hinn er vinurinn "gaggi" frá Japan) sem eru algjör knúsudýr og er víst mjög fyndið að sjá þegar þau hittast.

Við erum enn að bíða eftir New York vetrinum en hann virðist bara ekkert ætla að koma. Það hefur nú verið vaninn að það sé mun kaldara hér heldur en heima á Íslandi en það er alveg öfugt þennan veturinn. Í dag er t.d. 9 stiga hiti og sól! Kvarta því ekki mikið nema þá að geta ekki notað öll hlýju fötin á SJ sem maður keypti samviskusamlega fyrir veturinn. Hún á t.d. æðisleg kulda/snjó "boots" en hefur ekki farið í þau einu sinni.. Og snjóbuxurnar fór hún einu sinni í þegar það kom smá snjór í byrjun desember.

Biðjum að heilsa heim í kuldann,
kv. Ágústa