Friday, January 23, 2009
Wednesday, January 21, 2009
Monday, January 19, 2009
Saturday, January 17, 2009
Saturday, January 10, 2009
Spurningaflóð
Spurningaflóðið sem er hér á heimilinu þessa dagana er alveg ótrúlegt!
Sólveig Júlía þarf að vita ALLT sem er að gerast í kringum hana. Spyr endalaust út í það sem við segjum: "hvað þýðir leiðangur?", "hvað þýðir veðrátta" osfrv. Nú má ekki lesa bækur nema að hún sé endalaust að spá í allt sem er að gerast, "en mamma, hvað heitir þessi og af hverju er þessi að gera svona" osfrv... Vorum á kaffihúsi um daginn og rétt hjá okkur sat ein mamma með 2 börn. "Mamma, hvað heitir stelpan? Hvað heitir strákurinn? Hvað eru þau að tala um?" og svo fylgir oft "segðu mér það mamma, segðu mér það".
Prinsessur og demantar eru aðalatriðið núna. Tekur oft um hálsmenið mitt og það heyrist mikil aðdáun í röddinni þegar hún segir "váááá en fallegur demantur". Við höfum alls ekki verið að ýta þessu að henni þ.a. þetta hlýtur bara að koma úr genunum einhvers staðar frá haha.
Hún er orðin mjög spennt að verða stóra systir og talar mikið um hvað hún ætlar að gera með litlu systur, skipta á bleyju, gefa henni barnamauk osfrv. Vonum bara að það verði ekki of mikil vonbrigði í byrjun þegar hún sér að það er ekki mikið hægt að gera með litlunni.
Hún byrjaði aftur í ballett í morgun eftir jólafrí og er mjöööög glöð með það. Gerir lítið annað hér heima en að labba um á tánum og dansa um í ballerínubúning.
Það verða smá breytingar hjá Sólveigu Júlíu í haust en þá byrjar hún í nýjum leikskóla. Hann er rétt hjá okkur (5 götum frá m.v. núverandi er 21 götu frá) og líst okkur rosalega vel á hann. Hún verður frá 8.30-2.30. Elstu krakkarnir (SJ aldur) byrja t.d. morgnanna á 10 mín jóga. Það eru fimleikar (fullur fimleikasalur á staðnum) 2svar í viku og síðan auðvitað fullt annað í gangi. Það verður mikill munur að þurfa bara að ganga í ca 7 mín vs. 25 mín þegar farið er með hana á leikskólann, tala ekki um þegar nýja baby verður komið.
Farið að kólna allhressilega en mér sýnist bara vera mínus hitatölur á spánni næstu 10 daga.
Kv.
Ágústa

Monday, January 5, 2009
Subscribe to:
Posts (Atom)