Thursday, October 22, 2009

Tuesday, October 13, 2009

Monday, October 12, 2009

Gullkorn

Við erum allt of léleg við að skrá niður gullkornin sem velta upp úr Sólveigu Júlíu en þetta heyrðist hér í kvöld:

SJ: Ég ætla aldrei að verða fullorðin
Mamma: Af hverju ekki
SJ: Því þá þarf maður að versla í matinn og svoleiðis en þegar maður er lítill þá getur maður bara "leikt" sér


SJ: Hvar vex spínat
Mamma: Í jörðinni
SJ: Getur maður þá farið í svona spínat-picking? Má ég kannski hafa spínat-afmæli? Mamma ég er alveg spínatsjúk!
Ein alveg að fíla ferska spínatið sem hún var að smakka í fyrsta skipti. Spínat-picking kemur frá því að hún er á leiðinni í apple picking næstu helgi með foreldrum sínum og í næstu viku með leikskólanum. Mikið rætt um það á heimilinu.

Annars er hún að þroskast alveg heilmikið þessa dagana. Búin að eignast góðar vinkonur sem hún er farin að leiða í leikskólanum og grenjar út play date með þeim. Förum oftast á róló eftir leikskóla ásamt fleirum úr leikskólanum og það er ekki vinsælt þegar maður þarf að fara heim. Annars vegar er hún gráti næst og hins vegar koma upp alls kyns stælar "No I'm not gonna go home, I'm gonna stay here" osfrv. Í síðustu viku kom ein vinkona hennar með okkur heim að leika og önnur fær að koma í þessari viku, mikið fjör.

Litli skæruliðinn er algjör skæruliði! Fátt skemmtilegra en að komast í dót systur sinnar. Skríður á maganum hér um á fullu og er alveg ótrúlega snögg á milli staða. Í dag komst hún í feitt þar sem Sólveig Júlía hafði skilið eftir boxið sitt sem geymir alla litina á gólfinu. Karítas var ekki lengi að hvolfa því og farin að róta í litunum. Farin að smakka alls kyns mauk og elskar allt sem hún fær upp í sig. Hún er algjört barn no. 2 þar sem það er ekkert mál að setja barnið í háttinn. Leggjum hana inn í rúm, slökkvum ljósin og löbbum út. Sú eldri fékk greinilega allt of mikla þjónustu á þessum aldri.. En þetta er algjör lúxus fyrir mömmuna sem þarf síðan að hugsa um stóru stelpuna sína líka :)

Fer vonandi bráðum í það að fylla nino síðuna af nýjum myndum.

Thursday, October 8, 2009

Monday, October 5, 2009