Wednesday, March 24, 2010
Tuesday, March 23, 2010
Friday, March 19, 2010
Thursday, March 18, 2010
Wednesday, March 10, 2010
Spáð og spekúlerað
Ein stelpan í bekknum hennar SJ á tvo pabba - enga mömmu semsagt ;) Það bættust við tvíburar í fjölskylduna í desember sl. via staðgöngumóður í Californiu. Við sáum tvíburana í fyrsta skipti í gær og á leiðinni heim erum við að tala um hvað þau væru nú lítil og sæt. Sólveig Júlía spyr mig þá: "en hver fæddi eiginlega tvíburana" (hún er alveg með það á hreinu að þessi vinkona hennar á bara tvo pabba). Pínu erfið spurning fyrir mömmuna og ég byrja að reyna að segja henni að það hafi einhver góð kona viljað gera það fyrir þá en hún grípur frammí fyrir mér: "jaaaa nei, ég held að það hafi bara verið amman" Alveg með þetta á hreinu, auðvitað getur ekki bara "einhver" kona fætt börnin fyrir þá!
Tuesday, March 9, 2010
Monday, March 8, 2010
Sunday, March 7, 2010
Gullkorn
Þetta vall upp úr stóru stelpunni okkar í kvöld:
"Þegar ég verð stór þá ætla ég að verða mamma. Þá mega krakkarnir mínir ráða ÖLLU, það verða sko engar reglur. Þau mega drasla til alveg eins og þau vilja og ég tek bara til eftir þau. Svo mega þau fá bara súkkulaði og sælgæti í kvöldmat - hmmm eða kannski fá þau fyrst bara eitthvað hollt, æ kannski er bara best að ég ráði.
Æ ég vil bara aldrei verða stór, það er svo leiðinlegt að ráða."

Thursday, March 4, 2010
Gullkorn
Sólveig Júlía er með frekar viðkvæma húð og í kuldanum þarf að passa vel upp á að bera á hana krem kvölds og morgna. Í kvöld segir hún:
SJ: "Það er gaman að vera með viðkvæma húð"
Á: "Nú, af hverju er það gaman?"
SJ: "Af því að þá er ég svo rauð"
Á: "er gaman að vera rauð?"
SJ: "Já ég vil vera öll rauð því ég vil vera svona strawberry girl"

Tuesday, March 2, 2010
Subscribe to:
Posts (Atom)