SJ: "Mamma, veistu hvernig maður segir hæ og bæ á Hawaii?"
ÁV: "Nei, hvernig?"
SJ: "Alohaaaa"
SJ: "Getum við einhvern tíma farið til Hawaii mamma, plííííís! Það er sko fullt af sandi og mikill sjór á Hawaii og það er sko fullt af svona "islands""
ÁV: "ójá við getum sko farið þangað einhvern tímann ;) "
ÁV: "Hver sagði þér frá þessu öllu?"
SJ: "Ég bara sá þetta í Wonderpets" - segið svo að að börnin læri ekki af sjónvarpinu ;)
Monday, August 30, 2010
Sunday, August 29, 2010
Saturday, August 28, 2010
Friday, August 27, 2010
Jahá!!! Ég gæti ekki lýst litla skriðdrekanum okkar betur!
Hrúturinn 21.mars - 19.apríl
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.

Thursday, August 26, 2010
Tuesday, August 24, 2010
Saturday, August 21, 2010
Thursday, August 19, 2010
Sunday, August 15, 2010
Friday, August 13, 2010
Thursday, August 12, 2010
Tuesday, August 10, 2010
Monday, August 9, 2010
Sunday, August 8, 2010
Saturday, August 7, 2010
Thursday, August 5, 2010
Wednesday, August 4, 2010
Tuesday, August 3, 2010
Monday, August 2, 2010
Subscribe to:
Posts (Atom)