Thanksgiving fríið okkar byrjaði ansi vel. Jói var búinn að vinna fyrir kl. 4 sl. miðvikudag og þá fórum við og fylgdumst með þegar verið var að blása upp gígantísku stóru "blöðrurnar" fyrir Macys skrúðgönguna sem er alltaf að morgni Thanksgiving. 15 stiga hiti og Sólveigu Júlíu fannst gaman að sjá marga af sínum uppáhalds karakterum uppblásna eins og Doru (the explorer) ofl. Ætluðum síðan að vakna snemma morguninn eftir og fylgjast með skrúðgöngunni eeeen little miss SJ vaknaði upp kl.4 og fór að kasta upp. Ætla ekkert að lýsa næstu dögum neitt í smáatriðum en þeir fóru vart í annað en að reyna að koma vökva ofan í SJ og að þvo þvott. Á laugardagsmorguninn var hún enn að gubba og eftir að hafa talað við lækni þá vorum við send á bráðamóttökuna. Greyið litla var orðin ansi máttfarin, mótmælti ekki einu sinni þegar verið var að stinga hana og svo svaf hún meira og minna þann dag. Hún var síðan útskrifuð seinnipartinn í dag. Þ.a. 4ra daga fríið okkar fór fyrir lítið. Ætla ekki að fara út í þá sálma hvað ég vorkenni foreldrum langveikra barna og vona að við þurfum aldrei að lenda í þeirri stöðu en þetta var með því erfiðara sem við höfum gert. Sólveig Júlía er algjör hetja í okkar augum, var með risa-unit um vinstri úlnið þar sem hún var með vökva í æð og gat því ekkert beitt þeirri hendi en hún kvartaði ekki einu sinni. Í dag var hún orðin það hress að hún fékk að fara í leikherbergið og hún lék sér með annarri eins og hún hefði aldrei gert annað, reyndi ekki einu sinni að beita hinni hendinni. Hún reyndar hafði það á orði 2svar að "konan" (hjúkkan) hefði gleymt blóðþrýstingsmælinum sínum og átti þá við unit-ið á hendinni. Öllum á spítalanum fannst hún auðvitað hrikalega dugleg og sæt.
Aðalatriðið er nú samt að við erum komin heim og hún er hress og kát. Hún var hrikalega glöð að koma heim og fékk að velja sér eitt dót úr dótabúðinni á horninu og varð pizzu Elmo fyrir valinu :)
Mikið af góðum gestum á næstunni en pabbi og TV koma á morgun og síðan frænkur mínar, Ágústa og Anna Katrín á föstudaginn. Lítur út fyrir mikla vinnutörn hjá Jóa svo það verður gott fyrir okkur mæðgur að fá félagsskap.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Æjjj littla skinnið, alveg hrikalegt að lenda í þessu en gott að þetta fór þó vel að lokum og hún er að hressast.
knús, kossar og batakveðjur,
Björt
litla fjölskyldan á hjarðarhaganum sendir duglegu frænku sinni stórt
knús og hlýjar hugsanir
Litla sílið, vonandi að hún hafði það sem best og verði hress og kát sem fyrst eins og henni einni er lagið.
Stórt knús&koss á SJ að þessu sinni
Kv. Kristrún
Gott að heyra að elskunni sé farið að líða betur. Mikið var hún dugleg litla snúllan ykkar.
Bestu kveðjur,
Lóa og Gunni
ÆJi elsku litla músin....ofsalega var hún dugleg!!! Gott að heyra að hún var sé orðin hress með hjálp pizzu Elmo :) Hafið það ofsa huggulegt í jólafílingnum í NY!!!
Risaknús,
Erla
Post a Comment