Nú er veturinn sko kominn, skítakuldi úti "-10 feels like -19" segir weather.com. Það hlaut að vera að það kæmi að þessu.
Helgin var rosalega fín, fórum á Sesame street sýningu í Madison square garden á laugardagsmorguninn. Sólveig Júlía sat stjörf allan tímann og vildi ekki fara þegar sýningin var búin. Hún átti síðan nokkra snilldartakta um helgina. Á laugardaginn röltum við mæðgur í leikfangabúðina sem er hér á horninu til að kaupa afmælisgjöf handa leikskólavinkonu hennar. Í búðinni er borð með lestarteinum þar sem krakkarnir mega leika sér á meðan fullorðna fólkið verslar. Ég kíki af og til á SJ og í eitt skiptið sé ég hana labba hálf-furðulega á móti mér og var mín þá búin að pissa í buxurnar (bleyjulaus). Ég kíki svona í kringum hana en sé engan poll og held því að þetta hafi þá bara farið allt í buxurnar. Þegar við komum heim þá segir hún "ég pissaði í buxurnar og konan þurrkaði" þ.a. á meðan mamman rölti í rólegheitum um búðina þá var mín bara búin að pissa á gólfið og búið að þrífa upp eftir hana...
Nýjasti frasi helgarinnar er hins vegar "what you doing pabbi" :)
Skelli nýjum myndum bráðlega inn.
kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Góð þjónusta í NY:) Hlakka til að koma eftir 2 mánuði!
knús Klara
En hvað SJ er dugleg að vera búin að kasta bleiunni. Slysin gerast á ótrúlegustu stöðum :O) auka naríur og buxur eru jafn nauðsynlegar í handtöskunni og bíllyklar.
Gangi ykkur vel, hlakka til að sjá fleiri myndir.
Rósa og Friðrik Helgi
Post a Comment