Það er frekar fyndið að fylgjast með sætalingnum leika sér þessa dagana. Í gær var hún að leika sé með little people kalla og síðan þurfti einn að komast fram hjá öðrum og þá heyrist í minni "excuse me" og það var síðan endurtekið oft. Hún leikur sér alveg í bland á íslensku og ensku. "Oh no" heyrist líka mjög oft.
Löng helgi að baki en það var Presidents day og því frí hjá Jóa í gær. Hittum marga um helgina, fengum Zach og Kirsten í mat á föstudaginn (voru í bænum frá DC), Íris, Erla Magga og Haukur Ingi komu í mat á laugardaginn og síðan fórum við út að borða með Maríu, Brynna ofl. á sunnudaginn. Það er ekki alveg auðveldast í heimi að láta passa Sólveigu Júlíu svona á kvöldin, hún lætur okkur alveg finna fyrir því ef við erum á leiðinni út og vill bara láta halda á sér og grenjar úr sér líftóruna þegar við förum. Þetta var reyndar xtra slæmt á sunnudaginn því að við vorum með nýja barnapíu (vinnur á leikskólanum hennar, samt ekki í hennar deild). Ekki alveg gott fyrir foreldrahjartað en samt nauðsynlegt að komast út. Hún hætti víst samt um leið og við fórum, algjör snillingur í að koma inn samviskubiti hjá foreldrum sínum.
Kuldinn um daginn var bara pínu plat, mikill kuldi í 2 daga og svo er búið að vera gott veður. Segi ekki að það sé 15 stiga hiti upp á hvern dag (var samt í gær) en oftast logn og fallegt og því finnur maður ekki fyrir pínu kulda ef maður er vel búinn.
Kv. mamman
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Sólveig Júlía vill greinilega að foreldrarnir séu bara heima að leika við hana.
Þessi börn eru bestu samningamenn sem til eru, vita alveg hvað þau eiga að gera til að koma inn samviskubitinu. Gaman að fylgjast með ykkur. Bið að heilsa.
Kv.
Sjöfn Eva og Safamýrarfjölskyldan
Takk fyrir síðast. Var að kíkja á myndir. Hafið það sem allra best.
kv
Gunni Þóriss.
Post a Comment