eða svona næstum því! Sólveig Júlía er alveg hætt að nota bleyju þegar hún er heima og hafa ekki orðið nein slys í 4 daga. Við erum enn að bíða eftir að fá grænt ljós frá leikskólanum um að leyfa henni að koma bleyjulausri þangað, gerist annað hvort í næstu viku eða þeirri næstu. Þau taka nefnilega alltaf bara 2 börn fyrir í hverri viku í koppaþjálfun. Held reyndar að SJ þurfi enga koppaþjálfun þar sem hún segir mjög samviskulega til þegar henni er mál (reyndar svo mikið sport að hún fer oftar á koppinn heldur en hún þarf).
Duddumál eru líka loksins orðin betri og hún farin að biðja minna um hana. Fær ekki að vera með hana nema þegar hún er orðin þreytt og á meðan hún sefur. Segi nú ekki að duddan laumist ekki upp í hana þegar hún finnur hana en veit þá samt aaalveg upp á sig sökina og þá tístir alveg í henni, frekar sætt.
Ég fór í foreldraviðtal í leikskólanum hennar um daginn og kennarinn hennar hafði auðvitað ekkert nema gott um hana að segja. Er farin að taka meiri þátt í hinu og þessu þar sem hún er loks farin að tjá sig aðeins á ensku. Skilur allt og segir "yeþþþ" við öllu. Er orðin voða dugleg að segja litina á ensku (kunni það auðvitað fyrir langa löngu á íslensku), kann öll form á ensku (triangle, circle etc..) - kann það t.d. ekki á íslensku, osfrv. Er mjög dugleg að hjálpa sér sjálf, klæða sig í, ganga frá eftir matinn, þvo sér um hendur osfrv. Framburðurinn hennar á ensku er líka "exceptional" eins og Miss Heather orðaði það. Já já ég veit, mikið mont og aftur mont en það má nú stundum, ekki satt ;) ? Svo má ekki gleyma að hún er mjöööög "affectionate" , alltaf að knúsa hina krakkana. Þau eru 2 (hinn er vinurinn "gaggi" frá Japan) sem eru algjör knúsudýr og er víst mjög fyndið að sjá þegar þau hittast.
Við erum enn að bíða eftir New York vetrinum en hann virðist bara ekkert ætla að koma. Það hefur nú verið vaninn að það sé mun kaldara hér heldur en heima á Íslandi en það er alveg öfugt þennan veturinn. Í dag er t.d. 9 stiga hiti og sól! Kvarta því ekki mikið nema þá að geta ekki notað öll hlýju fötin á SJ sem maður keypti samviskusamlega fyrir veturinn. Hún á t.d. æðisleg kulda/snjó "boots" en hefur ekki farið í þau einu sinni.. Og snjóbuxurnar fór hún einu sinni í þegar það kom smá snjór í byrjun desember.
Biðjum að heilsa heim í kuldann,
kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Til hamingju með nýjasta áfangann,það má alveg vera montin með þessa prinsessu:)knús frá Klöru frænku
Post a Comment