Sólveig Júlía var eitthvað að skoða á sér brjóstin um daginn og segir:
"Núna er ég með lítil brjóst en þegar ég verð stór má ég þá kannski fá brjóstahaldara í afmælisgjöf?"
Ég var að setja hana í rúmið áðan og hún biður mig um vatn og ég segist fara og sækja það fyrir hana. Heyrist þá í minni "mikið var ég heppin"
Rugl á milli íslensku og ensku kemur inn á milli. Hún er mikið í því að láta baðdýrin sín fara að sofa í baðinu, fá kannski þvottapoka sem sæng osfrv. Ég kem inn á bað áðan og þá segir hún: "Dýrin voru að vakna upp" (wake up).
Annars allt fínt að frétta. Við mæðgur lögðum í ferðalag í dag með Ástu og Óla en við fórum í klukkustundar lestarferðalag út á Long Beach sem er á Long Island. Alveg frábær strönd og lítið mál að ferðast þangað þ.a. þangað verður farið pottþétt farið aftur.
Hlökkum mikið til að koma heim en við komum að kvöldi 7.ágúst og verðum til 21.ágúst.
Kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment