Friday, October 31, 2008
Thursday, October 30, 2008
Wednesday, October 29, 2008
Tuesday, October 21, 2008
Gullkorn
Við vorum að bursta tennurnar í kvöld þegar Sólveig Júlía sem var ber að ofan fer að hnykla vöðvana fyrir framan spegilinn og er voða mikið að horfa á sig. Ég spyr hana hvort hún sé að sýna mér hvað hún sé sterk og þá segir hún:
"Já, en hvar eru kúlurnar mínar mamma??" Fannst sem sagt skrítið að sjá engar kúlur á handleggjunum! Ég veit ekki alveg hvaðan hún hefur þetta, ekki eins og við foreldrarnir séum mikið að hnykla okkur fyrir framan spegilinn og hvað þá að við séum með einhverjar "kúlur" ;)

Jólin nálgast..
Jæja þá eru ferðaplönin okkar um jólin komin á hreint!
Við Sólveig Júlía lendum heima að morgni 13.desember en Jói kemur viku seinna. Förum síðan öll saman aftur út þann 28.des.
Við höfum ekki verið heima um jól síðan 2005 þ.a. það er mikil tilhlökkun hér á bæ :)

Monday, October 20, 2008
Heimsokn til afmælisbarnsins
Joi ordinn 30! SJ var ekki litid spennt ad fa ad heimsækja pabba sinn
i vinnuna og fara med honum i "vinnu"hadegismat.

Saturday, October 18, 2008
Thursday, October 16, 2008
Tuesday, October 14, 2008
Úrræðagóð
Litli snillingurinn var ansi úrræðagóð hér í kvöld.
Um helgina eftir að þau feðgin voru búin að byggja myndarlega lestarteina-braut og leika sér saman með það fékk sú litla smá geðvonskukast og byrjaði að rústa brautinni og kasta teinunum út um allt. Tilkynnti líka foreldrunum um leið að hún "elskaði að skemma". Jói tók þá alla teinana saman og fór út og "henti" þeim. Hún skammaðist sín svo mikið að hún hefur ekki þorað að nefna þetta síðan. Í kvöld vorum við aðeins að ræða saman og ég spyr hana hvort hún sakni nú ekki lestarteinanna sinna (eitt af hennar uppáhalds) og þegar hún segir jú þá segi ég að pabbi geti kannski sótt þá í ruslið en þá verði hún að vera voðalega góð og hlýðin. Þá kemur mín með þessa ræðu:
"Já hann pabbi getur bara fengið lánaða veiðistöngina hans afa og veitt þá aftur upp úr ruslinu (hún heldur að þeir hafi farið niður ruslarennuna). Afi getur flogið hingað til okkar í nóttinni og komið með veiðistöngina sína og hjálpað pabba. Ohhh ég ætla sko að knúsa og kyssa hann afa minn þegar hann kemur."
Já lítið mál að "veiða" bara teinana aftur upp úr ruslinu ;)

Monday, October 13, 2008
Friday, October 10, 2008
Wednesday, October 8, 2008
Wednesday, October 1, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)