Við vorum að bursta tennurnar í kvöld þegar Sólveig Júlía sem var ber að ofan fer að hnykla vöðvana fyrir framan spegilinn og er voða mikið að horfa á sig. Ég spyr hana hvort hún sé að sýna mér hvað hún sé sterk og þá segir hún:
"Já, en hvar eru kúlurnar mínar mamma??" Fannst sem sagt skrítið að sjá engar kúlur á handleggjunum! Ég veit ekki alveg hvaðan hún hefur þetta, ekki eins og við foreldrarnir séum mikið að hnykla okkur fyrir framan spegilinn og hvað þá að við séum með einhverjar "kúlur" ;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Litli snillingurinn :)
He he hún er ótrúleg. Æðislega gaman að fylgjast með henni. Er alltof löt að commenta hjá ykkur. Sé ykkur vonandi um jólin.
Kv. Dóra
Post a Comment