Pínu erfitt að vera orðin þriggja ára! Nú er hún oft ansi "þreytt" í höndunum þegar hún er að borða eða á að taka til eftir sig. Svo þegar hún vill ekki meira að borða þá verður hún oft þreytt í munninum sínum og að sama skapi ef hún nennir ekki að svara manni. Ansi þreytt þessa dagana þessi unga dama.
Við sögðum henni fréttirnar af litla bumbukrílinu þarsíðustu helgi. Ég var búin að kaupa bók sem heitir "I'm a big sister" og lásum við hana fyrst og sögðum henni síðan að hún myndi eignast litla systur. Henni fannst það voða spennandi fyrst, sagðist ætla að hjálpa til við að skipta á bleyjum og fá að halda á henni. Síðan þegar hún fattaði að þessi systir væri ekki að fara að koma Í DAG, þá varð þetta bara grafið og gleymt og mín vildi fara að leika. Síðan eftir að hún er farin að segja sjálf frá þessu, leikskólakennurunum ofl. þá er hún farin að tala mikið um þetta. Ætlar að leyfa litlu systur þetta og hitt og sagði einu sinni "ég ætla að kyssa hana og knúúúúsa, en bara laust mamma". Jói fór með hana í ballett tíma á laugardaginn og heyrði hann langt fram á gang í miðjum tíma "I'm gonna be a big sister", þ.a. held að hún sé farin að fatta að hún fær ágætis athygli þegar hún tilkynnir þetta. So far miðað við viðbrögðin þá finnst manni að þetta muni ekki verða neitt rosalega erfitt fyrir hana en maður veit auðvitað aldrei.
Annars er litla skvísan orðin ansi spennt að fara til Íslands í desember og talar mikið um það. Hún setur það alveg í samhengi að við séum að fara til Íslands um jólin og að það verði snjór og ætlar sér stóra hluti í snjónum. Ég vona því bara að það komi amk pínu snjór. Erum líka farnar að tala um að fá í skóinn og hún er mjög spennt yfir þessu öllu saman.
Að öðru þá er barasta allt í hinu fína hér í stórborginni. Farið að kólna allverulega en ekkert til að kvarta yfir ef maður býr sig vel. Thanksgiving á fimmtudaginn og við ætlum að eyða deginum og borða ótæpilega af kalkún með Maríu Mjöll, Brynna og co.
Kominn háttatími fyrir litla mús þ.a. þetta verður ekki lengra í bili :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Alltaf jafn gaman að fá update af ykkur og sérstaklegar sögurnar af Sólveigu Júlíu. Ég skemmti mér mikið við þessa lesningu :-)
Biðkærlega að heilsa prinsessunni, væri alveg til í að vera úti hjá ykkur aftur núna.
Knúsar frá Íslandi, Sjöfn Eva
Post a Comment