Monday, February 16, 2009

Gullkorn

Það hefur ýmislegt áhugavert komið uppúr Sólveigu Júlíu núna undanfarna daga.

Í gær var hún e-ð mikið að reyna að segja mér að hún hefði verið að læra um Kris Kalambos í leikskólanum og það tók mig smá stund að fatta að hún ætti við Christopher Columbus. Þá var hún búin að tilkynna mér m.a. að þetta þýddi lambúshetta á íslensku (Kalambos=lambúshetta). En síðan þegar ég fattaði loks hvað barnið var að tala um þá sagði hún mér að hann hefði fundið Ameeeerica (með mjög amerískum hreim) og væri captain. Hann hefði m.a. komið til Hamas (Bahamas) og þegar ég spurði hvað hann hefði gert þar þá fór hann úr öllum fötunum og fór í sundlaugina (barnið var jú á Bahamas sl. haust og gerði lítið annað en að leika sér í sundlauginni ;). Ég játa að ég man nú ekkert alltof mikið úr sögu og þurfti að kynna mér upp á nýtt ferðalag Columbus og það er alveg rétt hjá minni að hann steig fæti á Bahamas.

Yfir kvöldmatnum í kvöld var hún mikið að velta því fyrir sér hvaðan þessi og hinn matur kæmi. Jú mjólkina fengjum við frá kúnum, eggin frá hænunum en ostinn hlytum við nú að fá frá músunum!

Við höfum aðeins verið að ræða um peninga við hana því að henni finnst ekkert sjálfsagðara en að fara bara út í búð og kaupa hitt og þetta ef e-ð vantar, þ.e. ef ég segi "nei við eigum það ekki til" þá svarar mín alltaf um leið "þá skulum við bara fara og kaupa". Við höfum reynt að útskýra að pabbi sé nú í vinnunni til þess að fá peninga til að geta keypt mat og aðrar nauðsynjar. Einnig sér hún auðvitað heimilislausa fólkið á götunum og hefur hún stundum gefið þeim einn og einn pening til að þetta fólk geti keypt sér eitthvað að borða. Þá kemur góða hjartað oft í ljós og hún segist vilja fara heim og ná í peninginn í sparibaukinn sinn til þess að gefa þeim meiri pening.

Hún vill BARA vera í kjól þessa dagana og það skiptir alveg máli hvers konar kjóll það er. Hún vill helst bara fara í "línukjól", það eru semsagt "plíseraðir" (segir maður það ekki?) kjólar, þeir sem fara í allar áttir þegar hún dansar eða snýr sér í hringi. Um daginn var ég að fara í kjól og hún spurði mig hvort ég vildi nú ekki fara í línukjól. Ég sagðist ekki eiga neinn þannig og mín var fljót að segja að við þyrftum þá að fara og kaupa þannig kjól handa mér. Ég svaraði á móti og sagði að við ættum nú ekki peninga til þess að kaupa nýjan kjól handa mömmu. SJ var fljót að segja að við myndum þá bara fara í vinnuna hans pabba og biðja þá um peninga fyrir kjól. - Já lífið er ansi auðvelt hjá 3ja ára grislingum ;)

Ég var að útskýra fyrir henni um daginn að þegar litla systir myndi fæðast þá þyrftu mamma og pabbi að fara á spítalann og sofa þar í 2 nætur. Þá horfir hún á mig hneyksluð og segir "neiiii, pabbi þarf ekkert að fara á spítalann" - sem er jú auðvitað rökrétt því að barnið er ekkert í maganum á honum.

Jæja dáist að þeim sem hafa lesið í gegnum þetta alltsaman, skrifa þetta að mestu leyti til þess að við gleymum ekki þessum gullkornum hennar.

6 comments:

Anonymous said...

Ahahahaha æðislegt....skemmti mér konunglega við að lesa þetta, hún er mesta yndið :)

Knúsogkram,
Erla

Anonymous said...

hahhaha .. allgjör snilld og á eftir að vera frábært að lesa í framtíðinni!

TAKK fyrir myndina.

Knús
Magga

Sjöfn Eva said...

Hehehe, þetta eru frábærar pælingar! Hún er nú meiri snillingurinn..

Sjöfn Eva

Anonymous said...

Gaman að lesa um gullkornin hennar Sólveigar Júlíu.
Bestu kveðjur
Kristrún

Herdis said...

Bara gaman ad lesa. Hun er svo mikill snillingur og algjor prinsessa:) knus. hs.

Rosa said...

hún er nú meiri snillingurinn :O) þetta er stórkostlegur aldur, frábært hjá þér að skrifa niður gullkornin.