Tuesday, June 2, 2009

Gullkorn

Hér sit ég og bíð eftir að fá að gefa barninu að drekka til að geta farið að sofa og það eru komnir 5 tímar og kortér síðan ég gaf henni síðast!! Þetta er barnið sem að vildi drekka á ca klukkutíma fresti fyrir einungis um viku síðan, en nú sefur hún bara á sínu græna. Ansi hrædd um að nóttin sé byrjuð hjá henni og því verði nóttin ansi skrautleg hjá mér....

En allaveganna þá notaði ég tækifærið og henti inn nokkrum myndum á nino. Fuuuullt af myndum bíða birtingar og ég ætla að reyna að fara í gegnum þær og setja þær inn á næstu dögum.

Má líka til með að skrifa niður snilldar gullkorn sem SJ kom með í gær þegar við vorum að keyra í bæinn eftir frábæra sumarbústaðarferð.

Karítas grét ansi mikið á leiðinni í bæinn og þegar hún grét sem sárast heyrist í minni:
"Hún er eins og sírena, getum við ekki bara gefið löggunni hana svo hún geti notað hana"

Hún er búin að vera að læra um mannslíkamann á leikskólanum og þ.á.m. um beinin. Er því ansi mikið að spyrja um bein þessa dagana.
SJ: "Er dýna með bein?"
Mamman: "Nei, einungis lifandi hlutir eru með bein"
SJ: "Hvað eru lifandi hlutir"
Mamman: "Fólk og dýr og það sem getur hreyft sig"
SJ: "Já mamma, bílar eru með bein"

Í sveitinni tók hún ástfóstri við nokkra grasmaðka sem hún safnaði í box. Lét við þá eins og þeir væru litlu börnin sín. Lét þá skríða á sér og sat bara ein úti í móa og var að spjalla við þá, "æ litla greyið mitt" osfrv. Kemur síðan til mín og spyr:
SJ: "mamma, má ég taka þá með heim"
Mamma: "Nei nei, við skulum bara skilja þá eftir í sveitinni, hér líður þeim best"
SJ: "En mamma, ég get haft þá í glugganum mínum"
Mamma:"þetta eru grasmaðkar, þeir verða að búa í grasinu"
SJ: "Sjáðu, ég set bara gras ofan í til þeirra" og rífur upp gras og setur ofan í boxið - Hvað segir maður við þessu!!!

Sólveig Júlía er annars hætt í leikskólanum, síðasti dagurinn var sl. fimmtudagur. Nú er hún komin í sumarfrí og byrjar á nýja leikskólanum í september.

Kv. Ágústa

1 comment:

Sjöfn Eva said...

Hahaha en frábært með þessi gullkorn hennar SJ. Gott að Karítas Friðný sefur loksins vel. Hlakka mikið til að sjá ykkur eftir mánuð.

Knúsar frá Íslandi.