Wednesday, November 25, 2009

Hver stjórnar?

Það er alveg á hreinu hver stjórnar á heimilinu! Síðustu helgi þegar Jói átti frí þá voru þau að leika saman og SJ datt í hug að fara að leira. Hún talaði um það við pabba sinn að það væri gaman að leira og sneri sér strax að mömmu sinni:

"Mamma, megum við pabbi leira plííííííís?"


Í morgun var allt á fullu við að undirbúa SJ fyrir leikskólann og ég segi við hana á e-m tímapunkti "geturðu farið niður og fundið til föt handa þér með pabba þínum"
Hún svarar með hneykslistón: "neeeei, pabbi kann ekkert að velja föt!"

2 comments:

Anonymous said...

hahahahha hún er algjört yndi- það er sko alveg á hreinu hver stjórnar - ætli Karítas taki síðan við:) knús, K

JF said...

þetta er ÆÐI :)