Það kom tannlæknir í heimsókn á leikskólann hennar Sólveigar Júlíu og þau fengu alls kyns fræðsluefni með sér heim. Við vorum að skoða það saman hér í kvöld og tala um tannpínu/tannhirðu osfrv. Þegar hún heyrði að það þyrfti að bora í tennurnar ef maður fengi skemmd í tennurnar þá vildi hún vita betur hvernig hún kæmi í veg fyrir það. Ég sagði að maður yrði auðvitað að vera duglegur að bursta tennurnar kvölds og morgna og að maður mætti ekki borða mikið nammi:
SJ: "hmmm þá ætla ég bara að borða eitt nammi á dag"
ÁV: "en maður á nú ekki að borða nammi á hverjum degi, bara kannski smá um helgar"
SJ: "ég held ég hætti bara alveg að borða nammi - hmmm eða nei, eg hugsa að ég ætli að fá eitt páskaegg enn og borða nammið innan í því og svo ætla ég að hætta að borða nammi"
- sjáum hvort þetta muni standast ;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Skynsöm stúlka! Kyss og kram
Post a Comment