Wednesday, March 10, 2010
Spáð og spekúlerað
Ein stelpan í bekknum hennar SJ á tvo pabba - enga mömmu semsagt ;) Það bættust við tvíburar í fjölskylduna í desember sl. via staðgöngumóður í Californiu. Við sáum tvíburana í fyrsta skipti í gær og á leiðinni heim erum við að tala um hvað þau væru nú lítil og sæt. Sólveig Júlía spyr mig þá: "en hver fæddi eiginlega tvíburana" (hún er alveg með það á hreinu að þessi vinkona hennar á bara tvo pabba). Pínu erfið spurning fyrir mömmuna og ég byrja að reyna að segja henni að það hafi einhver góð kona viljað gera það fyrir þá en hún grípur frammí fyrir mér: "jaaaa nei, ég held að það hafi bara verið amman" Alveg með þetta á hreinu, auðvitað getur ekki bara "einhver" kona fætt börnin fyrir þá!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
haha, en skemmtilegar pælingar hjá SJ, kannski ekki alveg rökréttar, en skemmtilegar
Kristrún
hahaha, hún er kostuleg þetta barn :-D
Post a Comment