Thursday, January 12, 2012

Stærðfræðisnillingur að mati mömmu sinnar

Hingað til hefur "Art" verið í algjöru uppáhaldi hjá SJ í skólanum.  Foreldrarnir héldu (vonuðu) auðvitað að t.d. stærðfræði myndi vera uppáhalds en ónei, listgreinarnar heilla mest.  Í kvöld vorum við að klára heimaverkefnið og eitt dæmið hljóðaði svo: 
"There were seven baseball players on the Cubs team.  The Bears had double that number of players.  How many baseball players were there in all?"
Hún svaraði eiginlega án þess að hugsa að Bears væru með 14 leikmenn og spurði síðan hvort ég (Á) vildi vita hvernig hún vissi það.  "Sko, ég veit að 8+8 eru 16 og 7 er einum minna en 8 og það eru 2x 7 svo það þarf að vera 2 minna en 16".  
Ekki lítið sem ég var stolt af minni því ég hélt að hún myndi telja þetta með puttunum eða setja upp svona talnalínu eins og þau hafa lært í skólanum.  Talnalínan var nú samt notuð fyrir 14+7.  

- Kannski verður stærðfræði uppáhalds eftir allt??

4 comments:

Jana said...

snillingur.

Anonymous said...

vá duglega stelpan, engin pressa samt frá foreldrunum að stærðfræði verði uppáhalds :)

kv. Björt

Anonymous said...

Algjör snillingur enda ekki langt að sækja gáfurnar.

Sjöfn Eva said...

alveg frábært, hún er snillingur :D