Allt fínt að frétta. Sólveig Júlía er heldur betur búin að ná sér eftir gubbupestina (hún gubbaði í 6 daga NB takk fyrir kærlega) og er alveg botnlaus þessa dagana. Ég er farin að halda að hún sé í einhverjum vaxtarkipp miðað við svengd. Hún fékk fulla leikskólaviku þann 1.des svo að nú fer hún hress og kát á leikskólann á hverjum morgni. Ég sæki hana þó alltaf um 3 leytið og við skottumst saman í jólaundirbúningi. Hún elskar að sjá allt jólaskrautið útum allt og það er mikið talað um jólasveina, jólaljós, jólaskraut og já bara allt jóla á þessu heimili. Hún fékk sendan jólasveina DVD og CD frá afa sínum á Ísafirði og það sló alveg í gegn.
Settum síðan skóinn út í glugga í gærkvöldi og hún var svona ekki alveg að fatta. Amk getum við ekki alveg notað þetta sem uppeldisaðferð ennþá ;) eins og er þá er henni nokkuð sama hvort hún fái eitthvað í skóinn, en sjáum hvað gerist eftir nokkra morgna.
Það hefur verið pínu brösugt að fá hana til að sofna sjálf í sínu rúmi eftir allt veikindastússið og er endalaust verið að biðja um að syngja eitt lag í viðbót, lesa eina bók í viðbót osfrv. Í gærkvöldi þegar hún átti að vera farin að sofa þá kallar hún og biður mig um að lesa eina bók "mamma lesa eina bók" og þegar ég segi nei, þá er mín fljót og segir "mamma lesa tvær bækur" !!
Einhverjir hafa verið að biðja okkur um heimilisfang fyrir jólakort og hér er það:
215 W 84th street, apt. 406
New York, NY 10024
Eyðum jólum hér en lendum heima að morgni 27.desember.
Kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hlakka svo til að fá ykkur heim eftir tvær vikur:) Koss og knús til ykkar, Klara
Post a Comment