Kannski pínu erfitt að vera 2ja ára og tala tvö tungumál. Um daginn þá talaði hún mjög mikið um að þetta og hitt væri svo hart, var t.d. að reyna að opna e-ð en það var svo hart. Ég var lítið að pæla í þessu fyrr en TV benti mér á að hún væri að þýða "hard" beint. Hluturinn var sem sagt ekki harður heldur erfiður! Síðan í gær þegar við vorum að ganga heim úr leikskólanum þá sagðist hún hlakka til að hitta frændur sína aftur: frændur=friends (úr leikskólanum).
Hún er annars alveg altalandi á ensku samkvæmt leikskólakennurum hennar. Við fáum lítið að heyra af enskunni hennar en getum hlerað af og til þegar hún er t.d. að leika sér. Síðan er mjög fyndið að hlusta þegar barnapían hennar kemur og Sólveig Júlía svissar alveg yfir í enskuna til að tala við hana.
15 dagar í brottför!
Wednesday, April 30, 2008
Monday, April 28, 2008
Wednesday, April 23, 2008
Sunday, April 20, 2008
Mikil speki
Við vorum að labba heim í kvöld eftir að hafa borðað úti með Maríu, Brynna og co og þá heyrist í minni:
"Mamma, veistuuuu .... smá þögn .... bílarnir keyra á götunni, ekki gangstéttinni!"

Friday, April 18, 2008
Thursday, April 17, 2008
Í boði
Erum búin að eiga frábæra viku með góðum gestum. Klara og Erna komu sl. fimmtudagskvöld og voru fram á mánudag. Held við höfum smakkað kampa- og freyðivín á öllum helstu stöðum borgarinnar. Við mæðgur áttum yndislegan tíma með þeim. Þær yfirgáfu okkur á mánudagskvöldið og með sömu vél komu afi og TV og voru í 2 daga. Það var auðvitað dekrað við litla skottið í bak og fyrir, fékk m.a. að velja sér sitt hvort dótið í ToysRus frá Ernu og Klöru og það fyrsta sem hún sagði við afa sinn var "fara í stóru dótabúðina". Hún fékk það auðvitað og eftir það fórum við í hádegismat á stað í nágrenninu og strax eftir matinn heyrist í minni "fara aftur í stóru dótabúðina" !! Hún er strax farin að sakna allra og þegar við vorum að tala um það í gær að nú væru afi og TV farin þá sagði hún "mamma, það er sorglegt". Það fyrsta sem hún sagði síðan þegar ég sótti hana í leikskólann í dag var "vil fara til Íslands", ekki alveg hægt að vera gestalaus (pabbi og TV fóru í gærkvöldi) og því á auðvitað bara að redda málunum sjálf.
Fyrsta "pissuslysið" útivið var í gær þegar við vorum á leið heim úr Central Park (fórum aðeins á róló eftir að hafa kvatt pabba og TV) og um leið og SJ sagði að hún þyrfti að pissa þá bara beygði hún sig aðeins niður og pissaði um leið. Ég þakkaði fyrir 15 stiga hitann því hún fékk að sitja pissublaut í kerrunni á leiðinni heim. Annars hefur hún verið mjög dugleg í þessum málum og hægt að telja slys á annarri hendi.
Veðrið er algjört æði, en í dag var 21 stiga hiti og glampandi sól og það á að vera enn betra næstu daga, eða um 25 stig.
Ég hef mikið notað á Sólveigu Júlíu að segja að hitt og þetta sé ekki í boði núna ef hún er e-ð að suða og hefur það virkað vel. En nú er sú stutta farin að nota það til baka á mömmu sína og notar þetta óspart. Í morgun sagði hún t.d. að það væri ekki í boði að fara í leikskólann (fékk frí í gær v/komu afa og TV og vildi örugglega bara fá áframhaldandi dekur). Og síðan segir hún stundum að hitt og þetta sé í boði, um daginn bað hún um vatn þegar hún var farin upp í rúm og segir þá "mamma núna er vatn í boði". Sem sagt það er allt annað hvort í boði eða ekki í boði þessa dagana. Hún er líka komin með ákveðnar skoðanir á því hvað mamma sín á að kaupa sér, í þau skipti sem hún fer í fatabúð með mér og þegar ég er að skoða e-ð þá segir hún stundum, nei mamma ekki kaupa þetta, þetta er ekki flott! Hún er aðeins farin að hafa skoðanir á því í hverju hún vill vera en úffff ég kvíði því þegar hún ÞARF að fá að velja allt sjálf...
Jæja nú er ekki í boði að skrifa lengur því að lítill unglingur þarf að komast í bað og upp í rúm..

Wednesday, April 9, 2008
Vorveður
Nú er gaman að vera til. Veðrið er alveg yndislegt, 15 stiga hiti og sól úti núna og á að fara upp í 21 stig á morgun. Klara og Erna koma síðan til okkar annað kvöld, búið að telja niður dagana síðan fyrir 4 vikum. Spáin er reyndar ekkert allt of góð fyrir helgina en eins og er þá á að rigna alla dagana þeirra. Vonum að það breytist en annars verða búðirnar bara stundaðar af enn meira kappi ;)
Sólveig Júlía er mjög spennt að fá frænkur sínar í heimsókn en er samt mikið að tala um að þær megi samt ekki taka hitt og þetta dót af henni. Þetta er mikið atriði þessa dagana, passa upp á sitt!
Leiðindaveikindi hafa herjað á heimilið sl. 2 vikur. Jói byrjaði á því að fá flensu og var frá vinnu í einn dag en var samt hálf-slappur í vinnunni nokkra daga á eftir. Ég tók við af honum og lá í heila 10 daga! Ég var að reikna það út að ég hef eiginlega ekki orðið veik í rúmlega 3 ár. Það var hins vegar ekki gaman að vera hundveik, með hita, hósta og þungan haus og þurfa að hugsa um eina 2ja ára sem varð veik líka! Jói gat ekki tekið sér frí frá vinnu og ég var hreinlega flutt heim í huganum þessa 2 daga sem voru erfiðastir. Maður hefði alveg þegið ömmu- og afahjálp við þessar aðstæður. En það var ansi glöð stelpa sem fór loks á leikskólann á mánudaginn eftir viku fjarveru, hún var alveg í banastuði þegar ég sótti hana og alveg ljóst að hún var fegin að hitta aftur vini sína og þurfa ekki að hanga lengur heima með mömmu sinni.
En allir frískir, hressir og kátir núna og við ekkert að flytja heim. Komum samt heim 16.maí og verðum til annað hvort 25. eða 26.maí.
Kv. úr vorinu í New York!

Subscribe to:
Posts (Atom)