Nú er gaman að vera til. Veðrið er alveg yndislegt, 15 stiga hiti og sól úti núna og á að fara upp í 21 stig á morgun. Klara og Erna koma síðan til okkar annað kvöld, búið að telja niður dagana síðan fyrir 4 vikum. Spáin er reyndar ekkert allt of góð fyrir helgina en eins og er þá á að rigna alla dagana þeirra. Vonum að það breytist en annars verða búðirnar bara stundaðar af enn meira kappi ;)
Sólveig Júlía er mjög spennt að fá frænkur sínar í heimsókn en er samt mikið að tala um að þær megi samt ekki taka hitt og þetta dót af henni. Þetta er mikið atriði þessa dagana, passa upp á sitt!
Leiðindaveikindi hafa herjað á heimilið sl. 2 vikur. Jói byrjaði á því að fá flensu og var frá vinnu í einn dag en var samt hálf-slappur í vinnunni nokkra daga á eftir. Ég tók við af honum og lá í heila 10 daga! Ég var að reikna það út að ég hef eiginlega ekki orðið veik í rúmlega 3 ár. Það var hins vegar ekki gaman að vera hundveik, með hita, hósta og þungan haus og þurfa að hugsa um eina 2ja ára sem varð veik líka! Jói gat ekki tekið sér frí frá vinnu og ég var hreinlega flutt heim í huganum þessa 2 daga sem voru erfiðastir. Maður hefði alveg þegið ömmu- og afahjálp við þessar aðstæður. En það var ansi glöð stelpa sem fór loks á leikskólann á mánudaginn eftir viku fjarveru, hún var alveg í banastuði þegar ég sótti hana og alveg ljóst að hún var fegin að hitta aftur vini sína og þurfa ekki að hanga lengur heima með mömmu sinni.
En allir frískir, hressir og kátir núna og við ekkert að flytja heim. Komum samt heim 16.maí og verðum til annað hvort 25. eða 26.maí.
Kv. úr vorinu í New York!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hlakka til að sjá ykkur á eftir. kossar og knús, Klara
Post a Comment