Erum búin að eiga frábæra viku með góðum gestum. Klara og Erna komu sl. fimmtudagskvöld og voru fram á mánudag. Held við höfum smakkað kampa- og freyðivín á öllum helstu stöðum borgarinnar. Við mæðgur áttum yndislegan tíma með þeim. Þær yfirgáfu okkur á mánudagskvöldið og með sömu vél komu afi og TV og voru í 2 daga. Það var auðvitað dekrað við litla skottið í bak og fyrir, fékk m.a. að velja sér sitt hvort dótið í ToysRus frá Ernu og Klöru og það fyrsta sem hún sagði við afa sinn var "fara í stóru dótabúðina". Hún fékk það auðvitað og eftir það fórum við í hádegismat á stað í nágrenninu og strax eftir matinn heyrist í minni "fara aftur í stóru dótabúðina" !! Hún er strax farin að sakna allra og þegar við vorum að tala um það í gær að nú væru afi og TV farin þá sagði hún "mamma, það er sorglegt". Það fyrsta sem hún sagði síðan þegar ég sótti hana í leikskólann í dag var "vil fara til Íslands", ekki alveg hægt að vera gestalaus (pabbi og TV fóru í gærkvöldi) og því á auðvitað bara að redda málunum sjálf.
Fyrsta "pissuslysið" útivið var í gær þegar við vorum á leið heim úr Central Park (fórum aðeins á róló eftir að hafa kvatt pabba og TV) og um leið og SJ sagði að hún þyrfti að pissa þá bara beygði hún sig aðeins niður og pissaði um leið. Ég þakkaði fyrir 15 stiga hitann því hún fékk að sitja pissublaut í kerrunni á leiðinni heim. Annars hefur hún verið mjög dugleg í þessum málum og hægt að telja slys á annarri hendi.
Veðrið er algjört æði, en í dag var 21 stiga hiti og glampandi sól og það á að vera enn betra næstu daga, eða um 25 stig.
Ég hef mikið notað á Sólveigu Júlíu að segja að hitt og þetta sé ekki í boði núna ef hún er e-ð að suða og hefur það virkað vel. En nú er sú stutta farin að nota það til baka á mömmu sína og notar þetta óspart. Í morgun sagði hún t.d. að það væri ekki í boði að fara í leikskólann (fékk frí í gær v/komu afa og TV og vildi örugglega bara fá áframhaldandi dekur). Og síðan segir hún stundum að hitt og þetta sé í boði, um daginn bað hún um vatn þegar hún var farin upp í rúm og segir þá "mamma núna er vatn í boði". Sem sagt það er allt annað hvort í boði eða ekki í boði þessa dagana. Hún er líka komin með ákveðnar skoðanir á því hvað mamma sín á að kaupa sér, í þau skipti sem hún fer í fatabúð með mér og þegar ég er að skoða e-ð þá segir hún stundum, nei mamma ekki kaupa þetta, þetta er ekki flott! Hún er aðeins farin að hafa skoðanir á því í hverju hún vill vera en úffff ég kvíði því þegar hún ÞARF að fá að velja allt sjálf...
Jæja nú er ekki í boði að skrifa lengur því að lítill unglingur þarf að komast í bað og upp í rúm..
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
ég sakna ykkar líka, takk aftur
fyrir frábæra samveru, skál! þangað til næst...ernie
Post a Comment