Tuesday, October 14, 2008

Úrræðagóð

Litli snillingurinn var ansi úrræðagóð hér í kvöld.

Um helgina eftir að þau feðgin voru búin að byggja myndarlega lestarteina-braut og leika sér saman með það fékk sú litla smá geðvonskukast og byrjaði að rústa brautinni og kasta teinunum út um allt. Tilkynnti líka foreldrunum um leið að hún "elskaði að skemma". Jói tók þá alla teinana saman og fór út og "henti" þeim. Hún skammaðist sín svo mikið að hún hefur ekki þorað að nefna þetta síðan. Í kvöld vorum við aðeins að ræða saman og ég spyr hana hvort hún sakni nú ekki lestarteinanna sinna (eitt af hennar uppáhalds) og þegar hún segir jú þá segi ég að pabbi geti kannski sótt þá í ruslið en þá verði hún að vera voðalega góð og hlýðin. Þá kemur mín með þessa ræðu:

"Já hann pabbi getur bara fengið lánaða veiðistöngina hans afa og veitt þá aftur upp úr ruslinu (hún heldur að þeir hafi farið niður ruslarennuna). Afi getur flogið hingað til okkar í nóttinni og komið með veiðistöngina sína og hjálpað pabba. Ohhh ég ætla sko að knúsa og kyssa hann afa minn þegar hann kemur."

Já lítið mál að "veiða" bara teinana aftur upp úr ruslinu ;)

2 comments:

LindaKrissó said...

:-) Bara yndislegt.

Unknown said...

Ahahahaha æðislegt :)