Er allt of léleg við að skrá allt sem vellur upp úr Sólveigu Júlíu en hér er smá sýnishorn:
Sólveig Júlía að ákveða í hvaða kjól hún ætti að klæðast í afmælinu sínu:
"Má ég vera í hvíta kjólnum mínum, þessi sem er ekki með neinn lit bara alveg hvítur. Hann er nefnilega jólakjóllinn minn og ballkjóllinn minn, hann er silkikjóll!" og hér var hún að tala um jólakjólinn sinn sem hún var í á jólunum 2007 þá 2ja ára! Vill alltaf vera að troða sér í hann því hann er SIIILKIKJÓLL ;)
Nokkrar pælingar hjá barninu:
"Af hverju er himininn svona stór?"
"Af hverju eru bílarnir fastir á jörðinni?"
Eitt kvöldið var ég inni í eldhúsi að huga að kvöldmat og heyri þá í henni vera að kalla e-ð frammi í stofu. Ég hélt að hún væri bara í e-m leik eins og vanalega og þegar ég kem fram þá situr mín uppi í glugga og kallar út:
"Does anybody out there want to play with me!!"
Nú þarf að finna leikfélaga fyrir hvern einn og einasta dag, greinilega ekki hægt að leika við mömmu lengur.
Þegar hún fær að horfa á barnatímann í sjónvarpinu þá er kallað hátt yfir hverri einustu auglýsingu:
"má ég fá svoooona í jólagjöf" eða "vá mig langar í svona í jólagjöf" Þetta eru orðin sjálfkrafa viðbrögð hjá henni því að áðan byrjaði hún
"Ég vil fá svoooona í jólagjöf" og strax á eftir fylgdi "hvað er þetta?"
Er síðan farin að óska eftir hinu og þessu fyrir systur sína, auðvitað allt sem hún gæti notað líka - kannski farin að fatta að hún mun ómögulega geta fengið ALLT sem auglýst er í sjónvarpinu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
hahahaha, hún er nú meiri snillingurinn hún SJ :-D Alveg tær snilld, það er alltaf jafn gaman að lesa hvað kemur út úr henni..
hahaha Hún Sólveig kann á þetta :D Greinilegt að óskalistinn sé orðinn soldið langur :)
Hún er yndisleg og mjög sniðug að finna jólagjafir fyrir "systur" sína. Kossar og knús,
Úff þessar auglýsingar eru náttúrulega rosalegar - Ýrr hrópar einmitt við hverja auglýsingu - "ég langar svona"
En kannski ekki skrítið... maður er alveg farinn að hallast að því að manni muni líða súperdúpervel ef maður fengi sér gigtarlyf eða Advil :)
Post a Comment