Thursday, October 4, 2007

Fréttapistill frá NYC

Ætti kannski að fylgja með færslunni hér að neðan að hún er ansi góð í að "panta leigubíla" eins og hún segir, og einnig heyrðist frá henni einu sinni þegar ég sagði að við værum núna að fara að labba heim, "fara í leigubíl" ;)

Leikskólinn sveik okkur með fleiri daga í október þ.a. hún er enn bara 2 daga vikunnar. Fáum vonandi 3ja daginn í nóvember. Hún átti að vera á leikskólanum í dag en fékk að vera heima þar sem það er e-ð að hrjá litla greyið okkar því að ég þurfti að skipta á 7 mis-skemmtilegum bleyjum í gær og hún er rauð á bossanum eftir því. Síðan hefur sama bleyjuvesen haldið áfram í dag. Hún er samt hress og kát og borðar vel þ.a. við höfum ekki miklar áhyggjur af þessu.

Þorvaldur var í vinnuferð hér í NY þ.a. hann og María og Brynni komu til okkar í gærkvöldi og við borðuðum saman. Við mæðgur eyddum síðan deginum í dag með Þorvaldi.

Nýjasta nýtt hjá litlu mús er að syngja sjálf. Henni finnst æði að hlusta á tónlist og láta syngja fyrir sig og allt í einu núna er hún farin að syngja heilu lögin alveg sjálf. Hefur greinilega viljað læra þau alveg áður en hún færi út í það að syngja. Lögin sem hún kann eru ABCD á íslensku og ensku, "Gulur, rauður, grænn og blár", Afi minn og amma mín, Afi minn fór á honum Rauð og svo stubbalagið eins og hún kallar eitt uppáhaldslagið.

Dora the Explorer er enn í miklu uppáhaldi og er misjafnt hvort hún vilji hafa Dóruköku eða Kisuköku (Hello Kitty) í afmælinu sínu. Á tímabili var hún farin að tala um að vilja Tommalest (Thomas and friends)köku en er hjúkket hætt við það ;) ekkert strákaþema hjá litlu prinsessunni minni takk fyrir! Við María ætlum að halda saman uppá afmæli grislingana þ.a. það verða samt auðvitað 2 þema í gangi.

Segi þetta gott í bili og biðjum að heilsa öllum heima á Fróni!

No comments: