Wednesday, October 10, 2007

Rigningin er góð til að hoppa og sulla...

Litla skott er búin að vera með hor og kvef í örugglega 10 daga núna. Vaknaði síðan upp rennsveitt með hita í fyrrinótt og fór því ekkert í leikskólann í gær. Fékk aftur smá hitavellu í gærkvöldi en getur vonandi farið í leikskólann á morgun. Það var smá rigning hér í morgun og Sólveig Júlía fór í pollabuxur og stígvél og við örkuðum út á róló, æði fyrir hana að geta hoppað í pollum án þess að heyra tuð í mömmunni (elskar nefnilega að hoppa og sulla en ekki mikil ánægja þegar hún fer að gera það í venjulegum skóm í drulluskítugum holræsapollum). Svo sem ekki mikið nýtt hægt að segja frá rólóferðinni nema við vorum algjörlega einar í heiminum!! Get ekki sagt að það hafi verið mikil rigning, meira kannski úði, en greinilega nóg til þess að halda amerískum börnum sem eiga ekki íslenska pollagalla heimafyrir.

Áttum æðislega helgi núna síðast en Jói var í fríi ALLA helgina (plús kom heim í kvöldmat mið,fim og fös). Jói hitti fyrst Gunna Palla vin sinn á föstudaginn og fór síðan í whisky klúbb íslenskra NY félaga. Á laugardaginn vorum við bara e-ð að dingla okkur öll saman en fengum síðan barnapíu í fyrsta skipti fyrir Sólveigu Júlíu (þegar frá er talin fjölskylda, vinir eða aupair) þar sem við fórum út að borða með Gunna Palla, Karen, systur Gunna og kærasta hennar. Fengum "lánaða" barnapíu Maríu og Brynna og munum pottþétt nýta okkur hana aftur, Sólveig Júlía svaka ánægð með hana og allt gekk vel.

Nú styttist í Halloween og það verður ekki lítið leiðinlegt að klæða SJ upp og láta hana safna nammi fyrir foreldra sína ;)

Mæðgurnar kveðja í bili!

No comments: