Wednesday, October 24, 2007

One, tú, þrííí

Vorum að lita í gær rétt fyrir háttatíma og ég heyri þá SJ segja "one, two, three litir" , og upp kom úr krafsinu að lillan okkar kann að telja uppá 10 á ensku. Við höfum ekki verið að kenna henni þetta þ.a. hún hlýtur að hafa lært þetta á leikskólanum. Hún kann að telja upp á 10 á íslensku nema sleppir alltaf 2 og 9.

Erum búin að æfa það að segja "twick og tvít" fyrir Halloween og mín er alveg með það á hreinu að hún fær nammi ef hún segir þetta. Erum að reyna að útskýra fyrir henni að mamma og pabbi eiga að fá nammið ;) en hún er sko ekki til í það, "Soljulia boðða nammið" !

Skoppa og Skrítla slógu aldeilis í gegn á laugardaginn, við tókum fullt af myndum sem ég hleð bráðum inn. Síðan eru þær með aðra sýningu (ný sýning) þann 3.nóvember og við förum auðvitað líka þá.

Kv. mamman

4 comments:

Anonymous said...

dugleg litla sponsið! auðvitað fær hún sælgætið! Hvernig grímubúning mun fröken fix skrýðast? kærustu kveðjur, Ernie

Ágústa said...

Litla frökenin er auðvitað búin að fá 2 búninga, þökk sé kaupsýki móðurinnar. Annar er maríuhænu-búningur og hinn er lítill kjúklingabúningur. Verður maríuhæna í leikskólanum en svo er spurning um veður í twick og tvít, ef það verður kalt þá mun kjúllinn koma að góðum notum.

Knús,Á

Anonymous said...

Æðislegar myndir!! knús og kossar, Klara

Anonymous said...

Vildi kvitta fyrir innlitið, gaman að fylgjast með ykkur hérna, Sólveig Júlía verður sætari með hverjum deginum;) kv.Lana frænka