Wednesday, March 19, 2008

Ég evska þig pabbi

Kannski kominn tími til að henda inn eins og einni færslu. Hef þetta á punktaformi í þetta sinn!

  • SJ alveg hætt með bleyju á daginn, líka í leikskólanum! Hefur ekki orðið eitt slys þar og ég hugsa með mér "told you so" því að fóstrurnar tóku sinn tíma í að leyfa mér að hafa hana bleyjulausa þar.
  • Litla skottið sat í fanginu á pabba sínum um helgina, horfði á hann og sagði "ég evska þig pabbi" höfum aldrei heyrt þetta frá henni áður þ.a. foreldrunum fannst þetta því auðvitað ofursætt! Auðvitað fékk pabbinn að heyra þetta fyrstur og þetta hefur ekki heyrst aftur. Kannski bara sanngjarnt að hann fái e-ð fyrstur svona einu sinni ;) (ekkert sár nei nei)
  • Hún er alltaf sama draumabarnið, segir alltaf mamma mín og pabbi minn. Einnig fá flestir aðrir "mín" og "minn" aftan við nafnið sitt.
  • Er líka algjörlega á "terrible two's" aldrinum, reynir mikið að sjá hversu langt hún getur gengið og verður ekki sátt ef hún fær ekki það sem hún vill. Líka ansi erfitt að deila dótinu sínu með öðrum krökkum, fær allt í einu skyndilegan áhuga á einhverju sem hún hefur ekki leikið sér með í laaangan tíma og þá auðvitað þegar hinn er að leika sér með það.
  • Amma Friðný kemur í heimsókn í kvöld. Það er mikil eftirvænting á heimilinu, litla skottan spennt að sjá ömmu og ætlar að bjóða henni í kaffiboð (mjög gaman að gefa kaffi með nýja bollastellinu sínu og oftast fær maður spælt egg með) og foreldrarnir ætla að skella sér á "deit" um helgina.
  • Vorið er alveg á næsta leiti (leyti?), það verður ljúft að geta farið berfættur í skónum út.
  • 3 vikur + 1 dagur í Klöru og Ernu :D og það er búið að plana hverja mínútu!!
  • Komum til Íslands 16.maí
Hef þetta ekki lengra í bili og við hér á 84.stræti óskum öllum gleðilegra páska!

5 comments:

Björt said...

Gleðilega páska kæra fjölskylda, hafið það gott.

kveðja,

Björt

Anonymous said...

Gleðilega páska. Hafið það gott í fríinu!

kv
Hildur, Jens og Nói

Anonymous said...

Gleðilega páska. Er að telja niður dagana. Knús, Klara

Anonymous said...

Gleðilega páska - heimta svo fleiri up-date á síðuna ;o))

Jochum búinn að kíkja í rauða hverfið og Cristianíu - var að fíla þetta í botn!

Knús
MT

Anonymous said...

Gleðilega páska elskurnar mínar! Hlakka til að sjá ykkur í sumar :)

Knús, Elsa.