- SJ alveg hætt með bleyju á daginn, líka í leikskólanum! Hefur ekki orðið eitt slys þar og ég hugsa með mér "told you so" því að fóstrurnar tóku sinn tíma í að leyfa mér að hafa hana bleyjulausa þar.
- Litla skottið sat í fanginu á pabba sínum um helgina, horfði á hann og sagði "ég evska þig pabbi" höfum aldrei heyrt þetta frá henni áður þ.a. foreldrunum fannst þetta því auðvitað ofursætt! Auðvitað fékk pabbinn að heyra þetta fyrstur og þetta hefur ekki heyrst aftur. Kannski bara sanngjarnt að hann fái e-ð fyrstur svona einu sinni ;) (ekkert sár nei nei)
- Hún er alltaf sama draumabarnið, segir alltaf mamma mín og pabbi minn. Einnig fá flestir aðrir "mín" og "minn" aftan við nafnið sitt.
- Er líka algjörlega á "terrible two's" aldrinum, reynir mikið að sjá hversu langt hún getur gengið og verður ekki sátt ef hún fær ekki það sem hún vill. Líka ansi erfitt að deila dótinu sínu með öðrum krökkum, fær allt í einu skyndilegan áhuga á einhverju sem hún hefur ekki leikið sér með í laaangan tíma og þá auðvitað þegar hinn er að leika sér með það.
- Amma Friðný kemur í heimsókn í kvöld. Það er mikil eftirvænting á heimilinu, litla skottan spennt að sjá ömmu og ætlar að bjóða henni í kaffiboð (mjög gaman að gefa kaffi með nýja bollastellinu sínu og oftast fær maður spælt egg með) og foreldrarnir ætla að skella sér á "deit" um helgina.
- Vorið er alveg á næsta leiti (leyti?), það verður ljúft að geta farið berfættur í skónum út.
- 3 vikur + 1 dagur í Klöru og Ernu :D og það er búið að plana hverja mínútu!!
- Komum til Íslands 16.maí
Wednesday, March 19, 2008
Ég evska þig pabbi
Kannski kominn tími til að henda inn eins og einni færslu. Hef þetta á punktaformi í þetta sinn!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Gleðilega páska kæra fjölskylda, hafið það gott.
kveðja,
Björt
Gleðilega páska. Hafið það gott í fríinu!
kv
Hildur, Jens og Nói
Gleðilega páska. Er að telja niður dagana. Knús, Klara
Gleðilega páska - heimta svo fleiri up-date á síðuna ;o))
Jochum búinn að kíkja í rauða hverfið og Cristianíu - var að fíla þetta í botn!
Knús
MT
Gleðilega páska elskurnar mínar! Hlakka til að sjá ykkur í sumar :)
Knús, Elsa.
Post a Comment