Loksins kem ég mér að því að stofna nýja síðu fyrir Sólveigu Júlíu. Þetta verður ekki hefðbundin bloggsíða heldur eins og áður þá verður þetta leið fyrir vini og vandamenn til að fylgjast með lífinu okkar hér úti. Ég mun fyrst og fremst segja frá því sem Sólveig Júlía er að gera þ.a. þið sem ekki hafið áhuga á að fylgjast með aðlögun á leikskóla, nýjum orðum, svefnvandamálum osfrv. getið hætt að lesa núna ;) Ef eitthvað merkilegt er í fréttum eða þá að mér hundleiðist og geri ekki annað en að hanga í tölvunni þá kannski koma færslur um önnur málefni.
Stór dagur í dag en fyrsti "alvöru" leikskóladagurinn var í dag. Hún var í aðlögun alla síðustu viku og gekk það misvel. Þetta er ekki tekið alveg jafn föstum tökum eins og maður hefur heyrt frá Íslandi, heldur er þetta gert á aðeins harðari máta. Greyinu var liggur við hent út í djúpu laugina á degi 2 og mömmunni sagt að fara. Veit ekki hvorri okkar leið ver, örugglega mér. Í morgun var mér síðan líka sagt að fara og hún grét og grét þegar ég fór en jafnaði sig víst frekar fljótt. Síðan fóru þau út að leika og hún varð víst frekar lítil þegar þau fóru út og þegar þau fóru aftur inn, breytingar á umhverfi fóru ekki vel í hana. Síðan vildi hún ekki borða hádegismat né leggja sig og þá var gott að mamman var í 2 mín fjarlægð á bekk að lesa. Þorði ekki að færa mig í 3klst ef þau skyldu nú hringja í mig. Hún fer síðan aftur í leikskólann á fimmtudaginn og þá hætti ég mér kannski í gymmið sem er í næsta húsi :)
Jói byrjaði síðan að vinna fyrir alvöru í dag. Það má því segja að "alvöru" lífið okkar hér í NY sé hafið.
Húsmóðirin kveður í bili!
2 comments:
Mikið er ég ánægð að síðan ykkar sé komin aftur í gang. Trúi því ekki að SJ sé byrjuð í leikskóla, mér finnst svo stutt síðan ég kom til ykkar og þá var hún svo lítil og ósjálfbjarga.
Gaman að heyra fréttir af ykkur sæta fjölskylda. Sólveig Júlía orðin svona stór leikskólastelpa. Gvuð hvað þetta hlýtur að vera erfitt að fara svona frá dúllunni, ég á þetta eftir þegar FH byrjar núna í nóvember..
Gangi ykkur vel og hlakka til að fylgjast með ykkur. kv. rósa
Post a Comment