heyrist ansi oft þessa dagana. Vill fá að vita hvað allt er, sama hvað það er. Síðan er hún farin að ögra foreldrunum ansi mikið, farin að "testa" hvar mörkin liggja.
Erna, Viktor og Vésteinn sætilíus eru komin í borgina. Eru búin að vera hjá okkur síðan á þriðjudaginn en fara heim til Íslands á morgun :( Það verður því tómt í kotinu eftir að þau fara. Sólveigu Júlíu finnst æði að hafa þau og má ekki missa sjónar af neinu þeirra og segir strax "kva´er Eðna" eða "kva´e Viktor" og vill alltaf vera að "kíkja á Vedeins". Henni finnst hún samt þurfa að berjast aðeins fyrir athyglinni og það hefur farið aaaaðeins meira fyrir henni heldur en vanalega. Vill mikið vera að knúsa litla frænda sinn sem er mishrifinn af því. Síðan uppgötvaði hún að hann getur verið með svolítið músarhjarta því að ef hún öskrar nálægt honum þá myndast skeifa og hann fer að gráta, það eru því ófá öskur hér á bæ þessa dagana.
Erna og Viktor kalla Jóa huldumanninn þar sem hann hefur varla sést síðan þau komu. Hann kemur heim ca á milli 2 og 4 á nóttinni og er farinn aftur um hálf níu á morgnanna. Það má því segja að það sé pínulítið að gera hjá honum. Þess vegna er líka búið að vera sérstaklega gott fyrir okkur mæðgur að hafa þau hér. Ég og Jói áttum að eiga "deit" night í kvöld þar sem E&V ætluðu að passa en minn maður þurfti að cancella v/vinnu og fékk ég því deit með Maríu Mjöll í staðinn. Fórum í bíó að sjá The Bourne Ultimatum.
Stærstu fréttirnar eru líklegast þær að lillan okkar er svooo dugleg á leikskólanum að ég á engin orð til yfir það. Á þriðjudaginn þá bara lagðist mín á beddann sinn (eru með bedda með sínu laki og teppi) og fór að sofa. Það þurfti enginn að halda í hendina á henni eða strjúka henni eða bara neitt. Síðan sótti ég hana stuttu eftir að hún vaknaði. Á fimmtudaginn þá gerði hún slíkt hið sama og "fékk" síðan að vera aðeins lengur á leikskólanum og ég sótti hana á leikvöllinn kl. 4. Hún er mikið farin að leika við krakkana og apar víst allt eftir leikskólakennurunum sama hvað þær segja. Það er því örugglega ekki langt í að hún fari að tala enskuna. Henni finnst samt ennþá erfitt að kveðja mömmu sína á morgnanna og grætur svo sárt að Erna fékk tár í augun þegar hún fór með mér á fimmtudagsmorguninn. Og meira af leikskólamálum - hún fær fleiri daga núna strax í október, jafnvel fulla viku!! Það þýðir líka bara eitt... þá þarf ég að fara að drífa mig í að skoða mín mál, hvað ég ætla að gera osfrv..
Þetta ættu að vera nægar fréttir af NY búum í bili,
kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment