Wednesday, September 12, 2007

Leikskólalíf

Þetta er loks allt að koma hjá little miss SJ, í gær borðaði hún hádegismatinn sinn á leikskólanum (e-ð sem hún hefur ekki viljað gera áður). Það er samt ennþá erfitt á morgnana þegar við mætum, um leið og hún sér leikskólann byrjar hún að segja "mamma horfa á" , og er þá að vísa í þegar ég var með og horfði á fyrstu dagana hennar. Síðan byrjar hún að gráta og heldur rembingsfast utan um hálsinn á mér þegar við nálgumst deildina hennar. Til að gera aðskilnaðinn ekki erfiðari þá kyssi ég hana bless og fer strax. En til að ég geti farið strax þá þarf ein fóstran að taka Sólveigu Júlíu og sú næsta að losa hendurnar hennar af mér á meðan hún öskrar ! Hún jafnar sig sem betur fer á nokkrum mínútum og byrjar að leika sér við hina krakkana. Ég jafna mig síðan þegar ég fæ símtal frá fóstrunni um að hún sé búin að jafna sig. En henni finnst greinilega gaman á leikskólanum því að hún er mikið að segja okkur frá hvað hún gerði þann daginn og er farin að kyssa fóstrurnar bless. Sætast er þó þegar hún segir nöfnin þeirra "miþþþ Liþa" (miss Lisa) og "miþþþ Heþþer" (miss Heather).

Haustið er greinilega komið til NY, í dag er bara rétt rúmlega 20 gráður og hreinlega svalt í skugganum. Vinnan fer hægt af stað hjá Jóa, hann fer rétt um hálfníu af stað á morgnanna og er kominn heim fyrir kl.6. Hann byrjaði þó í einhverju verkefni í gær þ.a. nú gæti hann þurft að fara að vinna lengur. Erla Magga var í stoppi hér í gær og við mæðgur náðum að sýna henni nýju íbúðina og næsta nágrenni. Æðislegt að ná að hitta hana og nú heyrist mikið "Egla Magga".

Kv. Ágústa

No comments: