Sunday, September 9, 2007

Lífið í New York

Það er spurning hversu uppbyggilegt það sé fyrir lítil börn að búa í New York. Í fyrrakvöld vorum við að fara út að borða og á meðan við erum að bíða eftir lyftunni í húsinu okkar spyr ég Sólveigu Júlíu hvert við séum að fara. "Í matinn" svarar hún um leið (með "nú í matinn" tón eins og ekkert væri sjálfsagðara). Þetta minnti mig á þegar maður var í skíðafríum í Austurríki og fór niður "í matinn" á kvöldin. Þá var það nú eiginlega bara í fríum sem maður fór í svona "mat" en Sólveigu Júlíu finnst ekkert sjálfsagðara en að fara út að borða eða þá að fá mat sendan heim. Minnir okkur reglulega á að "maðurinn kom með matinn". Fengum síðan loks nýja sófann okkar og borðstofuborðið í gærmorgun og auðvitað kom maðurinn með það (eða gaf okkur það eins og hún segir). Síðan er mjög þægilegt að láta manninn bara keyra sig á milli staða (leigubílsstjórann) og hún er orðin góð í að vinka leigubílunum þegar manni vantar einn slíkan.

Já ljúft líf í New York, ekki satt ;)

3 comments:

Anonymous said...

SJ er nátturulega fædd með stórborgarablóðið í æðum sér enda á hún það ekki langt að sækja. Vona að þið hafið það gott elskurnar. Love Bergþóra

Anonymous said...

Sólveig Júlía... "SJ" ...Sarah Jessica??? ;) Ein tilvonandi Sex and the City NY píja.
b.kv., Sandra

Unknown said...

hahahhaha En fyndið! Veraldarvön litla skvísan!
knús.
hildur frænka