Halloween í dag og ríkir mikil spenna á heimilinu. Sólveig Júlía veit að hún á að fara í búning, setja "twick or tvíít" og fá svo nammi.
Byrjum hrekkjavökuna á því að fara í leikskólann kl.3 og þar fara allir krakkarnir í skrúðgöngu sem endar inni á leikskolanum í partýi með kökum og djús. Um 6 leytið förum við síðan að sníkja nammi en öllu 69. stræti hér vestan megin er lokað fyrir bílaumferð og þar safnast allt hverfið saman og úr verður hálfgerð götuhátíð, allt skreytt og flott.
Set inn myndir fljótlega en verð að biðjast velvirðingar á Skoppu og Skrítlu myndunum því að Jói tók þær allar á "raw" formatti og ég get ekki sett þær á netið fyrr en hann er búinn að vinna þær (get auðvitað ekki gert það sjálf ;).
Síðan kemur amma í heimsókn á morgun og mikil eftirvænting eftir því.
Kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Happy Halloween, hlakka til að sjá myndir af snúllunni í búning.
Fór mamman í búning líka ???
knús & kossar,
Björt
Post a Comment