Thursday, October 11, 2007

Heimavinnandi húsmóðir...

Síðan ég byrjaði í starfinu þá hefur mér tekist..

a) að detta inn í alla sjónvarpsþætti sem til eru. Meira að segja "Bachelor", eitthvað sem ég hef ekki fylgst með í mörg ár! Fylgir þetta starfinu? Tek það nú samt fram að á daginn er ég ennþá fyrst og fremst mamma þ.a. Dr.Phil o.fl. sjást ekki á skjánum á þessu heimili. Spurning hvenær gralldísin getur farið að sjá alveg um sig sjálf svo ég geti bara legið eins og skata fyrir framan tívíið.

b) að komast í silfurklúbb GAP! Jahá, opnaði GAP kort fyrir um ári síðan og ég hef greinilega verið ansi dugleg við að strauja kortið því í gær barst mér bréf þar sem mér var þakkað kærlega fyrir að vera góður viðskiptavinur og að ég væri því komin í silfurklúbbinn þeirra. Er því komin með ansi fínt silfur GAP kort og allskyns auka-hlunnindi. Manni tekst nefnilega að eyða og eyða í þessu starfi en þegar maður er með svona fínt kort þá finnst manni maður líka alltaf vera að græða, því að þú færð punkta fyrir hvern $ og síðan fær maður sent í pósti reglulega 10$ reward. Og þá fer maður auðvitað beinustu leið í búðina og kaupir fyrir $$$ því að maður er að græða 10$ !!

Setur maður þessa reynslu ekki beint á CV-ið?

4 comments:

Anonymous said...

Mér finnst að þú ættir að setja þér markið með að stefna á gullið:) knús til ykkar, Klara

Anonymous said...

bíddu, bíddu, ég er alveg til í þennan leik! Ernie

Anonymous said...

Silfur... Gull... myndi setja stefnun á Platinium. Get hjálpað þér við þetta ;o))

Anonymous said...

Kannski betra að kvitta fyrir sig - Platinium konan. Magga