Sólveig Júlía er alsæl á leikskólanum og kyssir mömmu sína og vinkar henni bless eins og ekkert sé þegar ég fer með hana á morgnanna. Fengum þær góðu fréttir í vikunni að frá og með 1.nóvember fær hún loksins þriðja daginn og verður því í leikskólanum þri, mið og fim. Erum alveg í skýjunum með þennan leikskóla. Bæði eru leikskólakennararnir algjört yndi og síðan er alltaf eitthvað í gangi. Núna er mikið verið að föndra með appelsínugult þar sem Halloween er á næsta leiti og t.d. í gær bjuggu þau til orange jello. Í skólastofunni hanga hin ýmsu listaverk eftir krakkana, bæði sem þau hafa málað sjálf og síðan eru líka "partner paintings" þar sem þau mála tvö og tvö saman.
Af öðru er svo sem ekki mikið að frétta. Vinnutíminn hjá Jóa hefur verið mjög fjölskylduvænn uppá síðkastið, frí síðustu helgar og oft kominn heim fyrir kl.7 á kvöldin. Nú fer afmælisvertíðin að byrja og vonandi mun Jói geta tekið sér frí á morgun afmælisdaginn sinn. Við ætlum að byrja á því að fara og sjá Skoppu og Skrítlu í fyrramálið ásamt Stefáni Borgari og foreldrum. Ætli við förum ekki síðan í brunch og njótum dagsins. Annað kvöld erum við síðan komin með pössun og við hjónakornin ætlum út.
Rigningarlegt í NYC í dag, spurning hvort við mæðgur munum ekki eiga rólóvellina útaf fyrir okkur.
Góða helgi elsku fjölskylda og vinir!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Til hamingju með afmælið Jói!
Gott að heyra góðar fréttir af ykkur, biðjum að heilsa í bili :)
Innilegar hamingjuóskir með daginn Jói. Knús, Klara
Post a Comment