Aðeins farið að róast hjá Jóa en hann kom heim kl. 7.30 í gær sem í dag þykir algjör bónus. Hann gat því sett SJ í rúmið og við borðað saman kvöldmat :) Á morgnanna fer hann síðan í "kaglaföt" að sögn dóttur sinnar.
Jói fær mörg prik fyrir snilld gærdagsins, hann uppgötvaði að Skoppa og Skrítla verða hér í NY að skemmta í október og nóvember. Ekki lítið sem Sólveigu Júlíu finnst þær skemmtilegar þ.a. hann keypti miða fyrir okkur á afmælisdaginn hans 20. október. Ég get ekki beðið eftir að sjá svipinn á dóttur minni þegar hún sér þær í eigin persónu.
31 stiga hiti og sól hér í dag :)
Kv. Ágústa
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ Hó!
gaman að fylgjast með ykkur. Spennt að sjá fleiri myndir... heyri frá þér um helgina.
Knús&Kossar
Magga
Sumar verða örugglega glaðar að hitta Skoppu og Skrítlu. Bíð einmitt líka spennt eftir fleiri myndum
Set inn nýjar myndir bráðlega!
Kv. Ágústa
Post a Comment