Saturday, September 15, 2007

Sólveig Júlía þroskast

Mjög gaman að fylgjast með hvernig leikirnir breytast hjá Sólveigu Júlíu. Núna getur hún t.d. setið í lengri tíma með bóndabæinn sinn og sagt dýrunum til. "Vertu inni" heyrist oft, þá er hún að skipa dýrunum fyrir og oft er "háttatími" og eftir stutta stund er sagt "góðan daginn". Henni finnst líka mjöööög skemmtilegt að drösla dúkkunum sínum hingað og þangað, skipta á bleyjum, gefa þeim að borða og drekka og koma þeim í háttinn.

Eftir að hún náði tækninni við að hoppa þá fer maður ekki út að labba lengur, heldur út að hoppa! Hún hoppar og skoppar út um allt. Nú væri gaman að komast á eins og eitt stk. "íslenskt" trampólín eins og í sumar.

Leikskólinn gekk vel á fimmtudaginn sl. (hún er bara á þriðjudögum og fimmtudögum enn sem komið er), það þurfti bara eina fóstru til að slíta hana frá mér og hún borðaði hádegismatinn sinn á réttum tíma með hinum krökkunum. Hún vill ekki enn leggja sig þar en það hlýtur að koma einn góðan veðurdag, ekki satt? Miþþþ Liþa og Miþþþ Heþþþer eru mjög hrifnar af henni og segja að hún standi sig mjög vel þegar mamma er farin. Leikur sér við hin börnin, syngur og dansar í söngstund og situr kyrr þegar það er lestrarstund. Er líka blaðrandi út í eitt sem er gott því þær segja að oft þegar erfitt er að aðlaga krakkana þá verða þau mikið inní sig og þegja þegar foreldrarnir eru farnir. Henni líður því greinilega vel og finnst gaman á leikskólanum.

Bangsimon og "gítttla" (Skoppa og Skrítla) eru í mestu uppáhaldi þegar kemur að sjónvarpsefni og ef hún mætti þá gæti hún horft á þetta tvennt til skiptis allan liðlangan daginn.

Jæja þetta eru svona helstu punktar úr lífi SJ þessa dagana!

Kv. frá litlu fjölskyldunni í NY

2 comments:

Anonymous said...

TAKK fyrir að vera svona dugleg að blogga, það er æði að fylgjast með ykkur dúllum!!! Ekki seinna vænna að Sara Jessica...nei meina Sólveig Júlía læri tæknina við að window shoppa :) Knús, Erla

Björt said...

Hæ hæ, frábært að það skuli vera komin ný síða gott að geta fylgst með ykkur í NY. Vona að þið hafið það gott, knús & kossar,
Björt